Tvö heimili
Ráðgjöf og sáttamiðlun fyrir fjölskyldur á tveimur heimilum
Sáttamiðlun
Sáttamiðlun er aðferð til lausnar ágreinings sem aðilar taka sjálfviljugir þátt í með hjálp sáttamiðlara.
Ráðgjöf
Ráðgjöf fyrir foreldra sem eru að slíta samvistum eða vilja leita leiða til að koma foreldrasamstarfi sínu í betri farveg.
Fyrir börn
Hlýleg og fagleg nálgun þar sem hagsmunir barnsins eru hafðir að leiðarljósi. Ráðgjafa- og stuðningsviðtöl fyrir börn.
Sérsniðin þjónusta
Sérfræðiálit, umgengni undir eftirliti, aðstoð við að koma á tengslum eftir umgengnisrof o.fl.
Jákvætt foreldrasamstarf
Við aðstoðum foreldra við að styrkja samskipti og skapa stöðugleika í lífi barna á tveimur heimilum.
Börn eiga rétt á því að alast upp við öryggi og kærleik og án þess að dragast inn í deilur foreldra. Með ráðgjöf er hægt að tileinka sér verkfæri foreldrasamvinnu og fyrirbyggja ágreining.

Um Tvö heimili
Markmið Tveggja heimila er að skapa vettvang fyrir börn og foreldra sem þurfa aðstoð vegna vankvæða í kjölfar samvistarslita og vilja leita leiða til að eiga jákvætt og uppbyggilegt foreldrasamstarf.
Hlýleg og fagleg nálgun
Áhersla er lögð á hlýlegt og jákvætt viðmót.
Velferð barna í fyrirrúmi
Hagsmunir og velferð barnsins eru höfð að leiðarljósi í allri ráðgjöf.
Persónuleg þjónusta
Þjónustan er sniðin að þörfum hvers máls fyrir sig.
Ertu í vafa um næstu skref?
Ef þú ert í vafa er þér velkomið að hafa samband við okkur.
Tvö heimili © 2026 | Facebook Instagram | Vefumsjón Proxima
