Önnur þjónusta

Á Tveimur heimilum er boðið upp á faglega þjónustu við börn og foreldra. Má þar nefna þjónustu sem við köllum tengslabrú og eftirlit með umgengni.

Lítil göngubrú yfir læk, hugmyndamynd um tengsl

Tengslabrú

Tengslabrú er sértæk ráðgjöf sem miðar að endurkynnum foreldris og barns í kjölfar langvarandi rofs á umgengni og samskiptum. Fengin er fram afstaða barns og út frá henni skipulagt aðlögunarferli að umgengni eða samskiptum við foreldri. Forsenda slíkrar vinnu er samkomulag beggja aðila á þátttöku í ferlinu.

Eftirlit með umgengni

Eftirlit með umgengni er unnið í samráði við foreldra og út frá aðstæðum barns. Áhersla er lögð á að barninu líði sem best í aðstæðum og fyrirkomulagið sé sniðið að hagsmunum þess, því fara fyrst fram undirbúningsfundir með barni og foreldrum áður en umgengni hefst. Miðað er við að umgengnin fari fram á heimili þess foreldri sem óskar eftir umgengni, annars í aðstæðum sem henta þörfum barnsins best.

Verðskrá

Gras í gangstétt

Viðtöl og önnur samskipti

Viðtal eða sáttamiðlun (90 mín):

27.000 kr.

Viðtal eða sáttamiðlun (60 mín):

22.000 kr.

Önnur þjónusta

Útgáfa sáttavottorðs:

15.000 kr.

Umgengnissamningur:

22.000 kr.

Eftirlit með umgengni:

22.000 kr. hver klukkustund

Forfallagjald

Tilkynna þarf forföll fyrir kl 15 deginum áður. Að öðrum kosti verður rukkað forfallagjald sem nemur helmingi við kostnað bókaðs tíma.

Viltu vita meira?

Ef þú ert í vafa um næstu skref er þér velkomið að hafa samband við okkur.